Helgafell eignarhaldsfélag hagnaðist um 1,9 milljarða króna á síðasta ári miðað við 1,3 milljarða hagnað árið 2019.

Hagnaðurinn er nær alfarið kominn til vegna hlutdeildar í afkomu S121 ehf., stærsta hluthafa fjárfestingafélagsins Stoða. Hluturinn í S121 er metinn á 8,3 milljarða króna.

Félagið á einnig í Barone I sem á Terra, áður Gámaþjónustan, og seldi Löður og Dæluna til Skeljungs í fyrra. Félagið er í eigu Kristínar, Ara og Bjargar Fenger og fjölskyldu.