Helmingur landsmanna segist hafa litlar eða engar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar en um þriðjungur hefur miklar áhyggjur. Þetta kemur fram í könnun MMR sem framkvæmd var dagana 9. - 16. september 2019.

Alls kváðust 22% hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans, 12% kváðust hafa frekar miklar áhyggjur, 16% bæði/og, 17% frekar litlar áhyggjur og 33% mjög litlar eða engar áhyggjur.

Meðal þess sem kemur fram í könnuninni er að karlar (55%) reyndust líklegri en konur (43%) til að hafa áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans. 41% sögðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur miðað við 23% kvenna. Þá kváðust 27% kvenna hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans en 19% karla.

Elsti aldurshópur svarenda (67 ára og eldri) voru líklegri en svarendur annarra aldurshópa til að segjast hafa miklar áhyggjur af áhrifum innleiðingar orkupakkans. 34% sögðust hafa mjög miklar áhyggjur. Yngsti aldurshópurinn (18-29 ára) reyndist hins vegar líklegri en aðrir til að segjast hafa litlar áhyggjur en 41% svarenda hópsins kvaðst hafa mjög litlar eða engar áhyggjur.

Þá reyndust höfuðborgarbúar líklegri til að hafa litlar áhyggjur en íbúar landsbyggðarinnar, en 37% svarenda á höfuðborgarsvæðinu kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Hins vegar kváðust 28% svarenda á landsbyggðinni hafa mjög miklar áhyggjur.

Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá að skiptar skoðanir voru á meðal stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna. Alls kváðust 68% stuðningsfólks Vinstri-grænna hafa litlar áhyggjur af áhrifum innleiðingar þriðja orkupakkans, samanborið við 59% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins og 51% stuðningsfólks Framsóknar. Þá reyndist rúmur helmingur stuðningsfólks Vinstri-grænna (51%) hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Áhyggjurnar reyndust meiri hjá stuðningsfólki Framsóknar heldur en hjá stuðningsfólki hinna ríkisstjórnarflokkanna en 36% þeirra kváðust hafa miklar áhyggjur, samanborið