Öryggismiðstöðin býður upp á nýja þjónustu varðandi viðgerðir á hjálpartækjum sem lánuð eru út af Sjúkratryggingum Íslands, en fyrirtækið hyggst nú sækja hjálpartæki heim til fólks sem þarf á viðgerðarþjónustu að halda því að kostnaðarlausu.

Ómar Örn Jónsson, hjá Öryggismiðstöðinni. segir að almennt gildi sú regla að það þurfi að mæta með tæki og búnað á verkstæði félagsins. En eins og alþjóð veit gildir nú samkomubann og margvíslegar varúðarráðstafanir vegna útbreiðslu Covid 19 veirufaraldursins.

„Í ljósi núverandi ástands og þeirrar staðreyndar að stór hluti þessa viðkvæma hóps hefur í raun komið sér í var hefur Öryggismiðstöðin ákveðið að sýna samfélagslega ábyrgð og tryggja nauðsynlega samfellu í þjónustu við þennan hóp. Þeir sem þurfa á viðgerðarþjónusta að halda á hjálpartækjum frá SÍ geta nú óskað eftir að tæki séu sótt heim," segir Ómar.

Ómar segir að þetta gildi fyrir öll hjálpartæki sem lánuð hafa verið út frá SÍ, einnig þau sem eru í bílum. Þjónustan er veitt á höfuðborgarsvæðinu.

„Starfsfólk Öryggismiðstöðvarinnar sér um að sækja tækin. Okkur er í mun að gæta fyllstu varúðar og starfsmenn fylgja leiðbeiningum Landlæknis um hreinlæti og viðeigandi hlífðarbúnað hverju sinni," segir Ómar.

„Eftir viðgerð er tækið þrifið vandlega og því skilað til baka. Við bendum þjónustuþegum á að fyrir þá sem eru minna á ferðinni en vanalega er e.t.v. kjörið tækifæri að láta gera við tæki sem alla jafna eru í mikilli notkun.“

Til að óska eftir að tæki sé sótt í viðgerð er bent á þjónustuver Öryggismiðstöðvarinnar í síma 5702400 eða [email protected].