Lífeyrissjóðir landsins hafa ákveðið, í samráði við Seðlabanka Íslands, að gera hlé á gjaldeyriskaupum til erlendra fjárfestinga til 17. september næstkomandi, samkvæmt yfirlýsingu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra í morgun .

Samkomulagið hófst þann 17. mars síðastliðinn en tilgangur hlésins var að bregðast við miklum samdrætti útflutningstekna af völdum Covid-19 faraldursins og mögulegum þrýstingi á gengi krónunnar vegna hans.

„Ljóst er að þetta hlé hefur gegnt veigamiklu hlutverki í að viðhalda þjóðhagslegum stöðugleika í gegnum þær holskeflur sem skollið hafa á þjóðarskútunni síðustu 3 mánuði,“ segir Ásgeir.

„Með þessu hafa lífeyrissjóðirnir á ný sýnt stuðning sinn í verki við að stuðla að stöðugleika á gjaldeyrismarkaði.“

Ásgeir minnir þó á að erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna eru mjög mikilvægar þegar horft er fram á veginn, hvort sem litið er til hagsmuna sjóðfélaga eða þjóðarinnar í heild. Þær fela í sér áhættudreifingu lífeyriseigna og koma í veg fyrir neikvæð áhrif af útgreiðslu lífeyris á íslenskt hagkerfi í framtíðinni. Þá eru erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða nauðsynlegar til þess að viðhalda jafnvægi á greiðslujöfnuði við jákvæðan viðskiptajöfnuð, útflutningsdrifinn hagvöxt og sköpun nýrra starfa.

„Seðlabankinn þakkar þá samfélagslegu ábyrgð sem lífeyrissjóðirnir hafa sýnt í þeim þrengingum sem þjóðin gengur nú í gegnum. Samvinna bankans og sjóðanna hefur vakið athygli erlendis og hefur m.a. verið sérstaklega tilgreind í nýlegum umsögnum alþjóðlegra matsfyrirtækja,“ segir Ásgeir.

„Þessi samvinna er kvik. Unnt verður að bregðast skjótt við ef aðstæður á gjaldeyrismarkaði breytast og svigrúm skapast fyrir sjóðina til þess að hefja erlendar fjárfestingar og gjaldeyriskaup þeim tengd á nýjan leik.“