Hlutabréfaverð í streymisveitunni Netflix lækkaði um 14% í gær. Þetta kemur fram á vef Financial Times . Lækkunin kom í kjölfar þess að nýjum áskrifendum fjölgaði ekki jafn mikið og spár gerðu ráð fyrir.

Netflix hafði spáð að nýjum áskrifendum í streymisveitunni myndi fjölga um 6,2 milljónir en raunin var sú að þeim fjölgaði um 5,2 milljónir.

Áður en fréttirnar af þessu bárust hafði verð á hlutabréfum í Netflix meira en tvöfaldast það sem af er þessu ári. Auk þess sem markaðsvirði fyrirtækisins jókst um 40 milljarða