TM og Kvika banki hafa hvert um sig boðað til hluthafafundar þann 30. mars næstkomandi, á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 16, til að kjósa um samruna félaganna tveggja auk Lykils fjármögnunar, sem er í eigu TM. Þetta kemur fram í tilkynningum frá báðum félögum.

Auk samrunatillögunnar verður á fundi Kviku lögð fram tillaga um breytingar á samþykktum félagsins vegna samrunans, nánar tiltekið hækkun hlutafjár.

Á dagskrá fundar TM eru engin önnur sérstaklega tilgreind mál, en eftir samrunatillöguna verða borin upp og rædd önnur mál.

Samrunaviðræður skráðu félaganna tveggja hófust formlega í lok september síðastliðnum, en orðrómur hafði þá verið um þreifingar þess efnis allt frá síðasta sumri. Það samkomulag sem úr því kom felur í sér að Kvika tekur yfir TM, en hluthafar TM eignast á móti ríflega 2,5 milljarð hluti í Kviku, eða sem nemur um 55% eignarhlut.

TM hafði keypt Lykil nokkru fyrr. Um kaupsamning var tilkynnt í október 2019 , og í janúar í fyrra fékkst samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir kaupunum, auk þess sem Samkeppniseftirlitið hafði einnig samþykkt þau nokkru fyrr, og þau gengu því í gegn í janúarbyrjun.