Hæstiréttur stafðesti í gær frávísun héraðsdóms í hópmálsókn hluthafa Landsbanka Íslands gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Hópurinn sem stefndi Björgólfi samanstóð af 235 einstaklingum sem áttu samanlagt 5,67% af heildarhlutafé gamla Landsbankans sem féll haustið 2008. Var kröfugerð sóknaraðila m.a. talin í andstöðu við lög um meðferð einkamála.

Í fyrra auglýstu Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Samtök sparifjáreigenda og lífeyrissjóðurinn Stapi eftir þátttakendum í umrædda hópmálssókn gegn Björgólfi. Meðal annars voru keyptar heilsíðu auglýsingar í dagblöðum. Það var Jóhannes Bjarni Björnsson, lögmaður á Lögmannastofunni Landslögum, sem rak málið fyrir þeirra hönd.

Í heild sinni hljóðaði færsla Björgólfs svo: „ Hæstiréttur Íslands hefur staðfest þann úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá máli hópmálsóknarfélags á hendur mér. Þessi ófrægingarleiðangur, undir stjórn Árna Harðarsonar og Róberts Wessman, hefur reynst þeim köppum lítil frægðarför.

Árni og Róbert hafa líklega þegar varið um 100 milljónum króna í þennan rakalausa og ruglingslega málarekstur. Þeir fengu hóp fyrrum hluthafa Landsbankans til að leggja nafn sitt við feigðarflanið, en sjálfir fara þeir fyrir 2/3 hlutum málsóknarfélagsins. Þá fékk hópmálsóknarfélagið drjúgan tíma í fjölmiðlum til að rekja í smáatriðum allan málatilbúnað sinn, sem nú hefur fengið falleinkunn hjá Hæstarétti.

Ég ítreka enn á ný að málefni mín og Landsbankans hafa verið rannsökuð í þaula af þar til bærum yfirvöldum og ekki talin ástæða til aðgerða í nokkru þeirra.  Þar að auki hef ég gert upp allar mínar skuldir við bankann og hann því skaðlaus af viðskiptum við mig.  Slitastjórn bankans hefur staðfest að hann eigi engar kröfur á mig. Misfærslum í skýrslu rannsóknarnefndar hef ég svarað ítarlega enda hef ég ekkert saknæmt unnið .“