Eignarhaldsfélagið Hornsteinn, sem er móðurfélag BM Vallár, Sementsverksmiðjunnar og Björgunar, hagnaðist um 705 milljónir króna á síðasta ári og dróst hagnaðurinn saman um tæplega helming frá fyrra ári. Félagið velti 7,5 milljörðum króna í fyrra en árið á undan velti félagið 8,4 milljörðum.

Eignir námu 5,8 milljörðum króna um síðustu áramót og eigið fé nam tæplega 4,7 milljörðum króna. Þorsteinn Víglundsson var ráðinn forstjóri Hornsteins fyrr á þessu ári, en hann sagði af sér þingmennsku til að taka við starfinu.