Hulda Pjetursdóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá Evris ehf. Helstu verkefni hennar eru að tengja íslensk fyrirtæki og erlenda fjárfesta auk þess að aðstoða íslensk fyrirtæki og stofnanir við að sækja erlenda styrki í Evrópu og BNA til nýsköpunar á Íslandi.

Hulda kemur til Evris frá Íslandsbanka þar sem hún starfaði við eignastýringu. Áður starfaði Hulda sem rekstrarstjóri hjá Green Energy Group í Nairobi í Kenýa, sem skuldabréfamiðlari bæði hjá HF verðbréfum og hjá Kaupþingi/Arion banka og sem yfirmaður lánamála hjá Landsvirkjun, þar sem hún sá um fjármögnun Kárahnjúkavirkjunar.

Hulda er viðskiptafræðingur að mennt með MBA gráðu en hún er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.

Evris er samstarfsaðili Inspiralia sem hefur undanfarin ár náð mjög góðum árangri við að sækja erlenda styrki til nýsköpunar á Íslandi. Þannig hafa félögin sótt rúmlega 25 milljónir evra í sjóði Evrópusambandsins til íslenskra fyrirtækja, en þau hafa einnig fengið styrki í Bretlandi og BNA.

Starfsemi Evris og Inspiralia hefur tekið nokkrum breytingum á undanförnum misserum þar sem áhersla er ekki lengur bara á styrkumsóknir heldur einnig að tengja íslensk fyrirtæki í nýsköpun við erlenda fjárfesta. Ráðning Huldu til Evris er þannig mikilvægur liður í því að styrkja þessa starfsemi.