Í nýbirtum tölum Þjóðskrár um vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sést að hún hækkaði um 1,9% í febrúar. Árshækkun leigu samkvæmt þinglýstum leigusamningum, nemur nú um 10,4% og er áþekk árshækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem mælist nú 10,6% að því er Íbúðalánasjóður bendir á.

Þetta er í fyrsta skipti í tæp þrjú ár sem fasteignaverð og leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækka jafn hratt á einu ári. Frá miðju ári 2015 tók fasteignaverð að hækka hraðar en leiguverð en nú virðist stærðirnar fyljast í auknu mæli að, þar sem fasteignaverð hefur tekið að róast.

Til samanburðar hafa laun nú hækkað um 7,2% á ársgrundvelli samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Árshækkun fasteignaverðs og leigu er því ofar hækkun launa, en slík hefur verið þróunin frá því í janúar 2017 þegar bæði leiga og fasteignaverð fóru að hækka hraðar en laun.