Hval hf. má nú finna á lista yfir stærstu hluthafa Arion banka , sem sýnir þau félög sem eiga yfir 1% í bankanum. Hvalur á 1,45% hlut í bankanum, sem er um tveggja milljarða króna virði. Hvalur er að stórum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar og fjölskyldu.

Hvalur hagnaðist um 14 milljarða króna á síðasta rekstrarári en þar af voru 13 milljarðar króna söluhagnaður sem skýrist af sölu 34% hlut í HB Granda til Útgerðarfélags Reykjavíkur, áður Brims. Fréttablaðið greindi frá því að Hvalur hafi keypt 0,4% hlut í bankanum við skráningu hans á markað á síðasta ári fyrir um 600 milljónir króna. Auk hluts í Arion banka er Hvalur stærsti hluthafi Hampiðjunnar og Origo í gegnum Vogun hf.