Gervigreindarhátíð HR verður haldin föstudaginn 25. janúar í Háskólanum í Reykjavík, kl. 14-19 í stofu V102. Viðfangsefni hátíðarinnar er gervigreind og máltækni.

Sérfræðingar frá Google, Amazon, Microsoft, Almannarómi og Háskólanum í Reykjavík munu ræða aðkomu gervigreindar að máltækni. Máltækni er rannsóknar- og þróunarsvið sem hefur það að markmiði að þróa búnað sem getur unnið með og skilið náttúruleg tungumál og stuðlað að notkun þeirra í samskiptum manns og tölvu. Máltækni hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, m.a. vegna stöðu íslenskunnar í tæknivæddum heimi og nýrrar verkáætlunar ríkisstjórnarinnar um máltækni fyrir íslensku.

Þróunin í máltækni hefur verið mjög hröð á undanförnum árum og byggir útfærsla á sýndarþjónum á borð við Siri hjá Apple, Alexu hjá Amazon og Google Home á þeim framförum. Þessi þróun er háð málföngum sem þarf til þess að útfæra tæknina. Það er því stór áskorun að yfirfæra þessa þróun yfir á öll tungumál.

Talgreining og talgerving hafa verið þróuð innan máltækninnar sem gerir fólki mögulegt að tala við og hlusta á tölvur og kerfi. Innan máltækninnar hafa einnig verið þróaðar lausnir sem gera kerfum kleift að vinna með mannamál þannig að hægt sé að draga út upplýsingar, gera sjálfvirkar samantektir og frekari greiningu fyrir hærri stig gervigreindar. Þessi tækni leikur lykilhlutverk í gervigreindarkerfum.

Máltæknifólk hefur einnig lagt mikið af mörkum á sviði gervigreindar í þeim tilgangi að þróa sína tækni. Þannig hefur þekking á endanlegum stöðuvélum, vélnámi og djúpum tauganetum verið þróuð innan máltækninnar en nýst mun víðar.

Gervigreindarhátíðin er haldin af gervigreindarsetri HR í samstarfi við Vitvélastofnun Íslands og Almannaróm. Erindi verða haldin á ensku og eru öllum opin.