Búist er við því að íbúar landsins verði 436 þúsund árið 2067 gangi miðspá Hagstofunnar eftir. Til samanburðar var mannfjöldinn 348 þúsund 1. janúar 2018. Í háspánni er reiknað með að íbúar verði 513 þúsund í lok spátímabilsins en 365 þúsund samkvæmt lágspánni.

Hagstofa Íslands hefur framreiknað mannfjöldann fyrir tímabilið 2018-2067 á grundvelli tölfræðilíkana fyrir búferlaflutninga, frjósemi og dánartíðni. Gerð eru þrjú afbrigði af framreikningnum; miðspá, háspá og lágspá.

Spáafbrigðin byggja á mismunandi forsendum um hagvöxt til næstu fimm ára, frjósemishlutfall og búferlaflutninga. Einnig er gerð grein fyrir þróun mannfjöldans og samsetningu á tímabilinu.

Meðalævi karla og kvenna við fæðingu mun halda áfram að lengjast. Nýfæddar stúlkur árið 2018 geta vænst þess að verða 83,9 ára gamlar en nýfæddir drengir 79,8 ára. Stúlkur sem fæðast árið 2067 geta vænst þess að verða 88,7 ára en drengir 84,4 ára.

Fjöldi aðfluttra verður hærri en fjöldi brottfluttra ár hvert samkvæmt öllum spáafbrigðum, fyrst og fremst vegna erlendra innflytjenda. Íslenskir ríkisborgarar sem flytja frá landinu verða áfram fleiri en þeir sem flytja til landsins.