Skráningum á íbúðum til sölu fjölgaði mikið á seinni helmingi síðasta árs, en um svipað leyti dró úr verðhækkunum á markaðnum segir í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Segir sjóðurinn að þetta sýni greinileg áhrif framboðs á íbúðaverð, en íbúðir sem seljast yfir ásettu verði hafa ekki verið færri í þrjú ár.

Á sama tíma er hlutfall fasteignaverðs og leiguverðs nú komið yfir sögulegt meðaltal sitt, það er hve lengi leigutekjur af íbúð eru að borga upp íbúðaverðið. Skýrar vísbendingar eru um að verðþróun íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafi á undanförnum misserum staðið í sterku sambandi við þann fjölda íbúða sem skráðar eru til sölu í hverjum mánuði segir í fréttatilkynningu frá sjóðnum.

Tæplega þriðjungsfjölgun milli 1. og 3. ársfjórðungs

Vísbendingar eru um að aukinn fjöldi eigna á söluskrá hafi dempað verðhækkanir í fyrra, en fasteignum sem skráðar eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 30% milli fyrsta og þriðja ársfjórðungs síðasta árs.

Meðalsölutími hefur ekki lengst mikið þrátt fyrir aukinn fjölda íbúða til sölu, sem bendir til þess að eftirspurn fólks eftir íbúðum sé ennþá mikil. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs í febrúar.

Ásett verð hækkar en færri íbúðir seljast yfir ásettu verði

Ásett verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. það verð sem kemur fram í auglýsingum, hefur haldið áfram að hækka undanfarna mánuði. Það hefur þó hækkað hægar en áður.

Hlutfall þeirra fasteignaviðskipta sem eiga sér stað yfir ásettu verði heldur áfram að dragast saman. Í desember seldust 8% íbúða á höfuðborgarsvæðinu yfir ásettu verði og hefur þetta hlutfall ekki verið jafn lágt í þrjú ár.

Hlutfall fasteignaverðs og leiguverðs komið yfir sögulegt meðaltal

Hlutfall fasteignaverðs og leiguverðs (e. price to rent ratio) hér á landi er nú komið yfir langtímameðaltal sitt. Fasteignaverð hefur einnig hækkað umfram leiguverð í mörgum nágrannalöndum okkar. Þróunin á Íslandi sker sig þó úr undanfarin tvö ár.

Það tekur nú hátt í 17 ár fyrir leigutekjur af þriggja herbergja íbúð í Kópavogi að borga upp kaupverð íbúðarinnar. Hins vegar tekur það ekki nema rúm 13 ár á Suðurnesjum.

Íbúðaverð hækkaði mest á Suðurnesjum í fyrra

Íbúðaverð á Suðurnesjum hækkaði um 35% milli áranna 2016 og 2017, sem er næstum því fordæmalaus hækkun á einu ári. Verðið hækkaði einnig mjög mikið í Árborg, Hveragerði og Ölfusi.

Minnst hækkaði fasteignaverð á nokkrum svæðum á landsbyggðinni þar sem verðþróun hefur ekki verið jafn næm fyrir hagsveiflum eins og til dæmis á höfuðborgarsvæðinu.