Icelandair mun flýta flugi frá Keflavík í dag vegna veðurs. Um er að ræða eftirfarandi 10 brottfarir frá Keflavík og hafa upplýsingar um breytingarnar verið sendar á alla farþega:

Brottfarir kl.14:

  • FI 631 til Kaupmannahafnar
  • FI 631 til Boston
  • FI 623 til Newark
  • FI 853 til Chicago
  • FI 689 til Orlando
  • FI 603 til Toronto

Brottfarir kl. 15:

  • FI 615 til New York
  • FI 681 til Seattle
  • FI 454 til London Heathrow

Brottför kl. 16:

  • FI 645 til Washington

Allt flug Icelandair frá Keflavíkurflugvelli í morgun var á áætlun eða í lítilsháttar seinkun. Lægðin sem fór yfir landið seinnipartinn í gær og í gærkvöldi hafði í för með sér að aflýsa þurfti öllu flugi frá landinu og margir farþegar biðu fastir í flugvélum.

„Veðrið í gærkvöldi varð óvænt verra en spár gerðu ráð fyrir. Aðstæður voru erfiðar þar sem fólk sat fast í flugvélum og í flugstöðinni þar sem Reykjanesbrautin var lokuð. Við þökkum farþegum þolinmæðina í þessum óviðráðanlegu aðstæðum. Við viljum jafnframt þakka starfsfólki okkar og viðbragðsaðilum sem gerðu sitt besta að upplýsa farþega, skipuleggja aðgerðir, dreifa mat, drykkjum, teppum og útvega gistiaðstöðu,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, uppýsingafulltrúi Icelandair.

„Þá sendi Icelandair mat fyrir 400 manns í hjálparmiðstöðina sem var sett upp í íþróttahúsinu í Reykjanesbæ. Sem betur fer þurftu ekki jafn margir að verja nóttinni þar og búist var við. Flestir fóru á hótel eða til síns heima þegar Reykjanesbrautin var opnuð á ný um miðnætti. Í samstarfi við Isavia, Rauða krossinn, Björgunarsveitir, Lögreglu og Reykjanesbæ, lögðust allir á eitt að greiða úr stöðunni. Allir farþegar Icelandair sem lentu í röskunum vegna veðursins í gær hafa verið endurbókaðir í ný flug og gert er ráð fyrir að flestir fari úr landi í dag.“

Gular viðvaranir eru í gildi til miðvikudags og má því gera ráð fyrir áframhaldandi röskunum á flugi. Farþegar sem eiga bókuð flug í dag og næstu daga eru hvattir til fylgjast vel með skilaboðum frá Icelandair um breytingar á flugi. Icelandair vinnur í því að hafa samband við farþega sem eiga bókað flug til að upplýsa um breytingar á brottförum.

Jafnframt hvetur Icelandair farþega að kanna hvort að réttar upplýsingar um netfang og símanúmer séu skráðar hjá félaginu. Farþegar munu fá senda uppfærða ferðaáætlun í tölvupósti en geta einnig fylgst með „umsjón með bókun“ á heimasíðu Icelandair. Þar eru flugupplýsingar uppfærðar um leið og breytingar liggja fyrir og þar geta farþegar jafnframt uppfært netföng og símanúmer þannig að hægt sé að koma skilaboðum til þeirra hratt og örugglega.