Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 3,2% í 229 milljóna króna viðskiptum. HB Grandi hækkaði næmstmest eða um 2,34% í 195 milljóna króna viðskiptum.

Heimavellir lækkuðu mest eða um 4,03% í 1 milljóna króna viðskiptum og Marel lækkaði næstmest eða um 1,53% í 331 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta nam 1,5 milljörðum og hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,68%.