Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkaði um 1,68% í 93 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Næstmest hækkun var hjá Origo en þau bréf hækkuðu um 1,27% í 39 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði TM um 0,57% í 14 milljóna króna viðskiptum en næst mest lækkun var hjá Skeljungi en bréfin lækkuðu um 0,56% í 36 milljóna króna viðskiptum.

Íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 0,18% en heildarveltan á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta í dag nam 625 milljónum króna.