Gengi bréfa Icelandair hefur lækkað í fyrstu viðskiptum dagsins eftir opnun kauphallarinnar. Þegar þetta er skrifað hefur gengið lækkað um 5,26% í 178 milljóna króna viðskiptum, eftir að kauphöllin hefur verið opin í rúman hálftíma.

Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í gær hækkaði Icelandair EBITDA spá sína fyrir árið 2017 og nam hagnaður félagsins um 1.150 milljónum íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi.