Icelandair hefur fengið Kviku, Íslandsbanka og Landsbankann til ráðgjafar um það hvernig megi tryggja lausafjárstöðu flugfélagsins til langs tíma. Félagið mun einnig vinna náið með ríkisstjórn Íslands að því fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu.

Veirufaraldurinn sem geisar nú um heiminn hefur gert það að verkum að flugferðir hafa nánast lagst af en flugáætlun Icelandair dróst til að mynda saman og var tæplega einn tíundi af því sem félagið hafði ráðgert.

„Enn ríkir mikil óvissa um hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og eftirspurn eftir flugi og ferðalögum muni aukast á ný og gera stjórnendur Icelandair Group ráð fyrir því að flugáætlun félagsins muni dragast saman um að minnsta kosti 25% yfir sumartímann. Lausafjárstaða félagsins að meðtöldum óádregnum lánalínum er enn vel yfir því viðmiði sem félagið starfar eftir en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 29 milljarða króna á núverandi gengi (200 milljónir bandaríkjadala) á hverjum tíma. Eins og tilkynnt hefur verið um, hefur félagið gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausafjárstöðu sína á undanförnum vikum. Hins vegar, ef miðað er við lágmarkstekjuflæði hjá félaginu í apríl og maí, er ljóst að lausafjárstaða félagsins muni skerðast og fara undir ofangreint viðmið,“ segir í tilkynningunni.

„Öll flugfélög heims standa nú frammi fyrir því krefjandi verkefni að styrkja rekstrargrundvöll sinn til framtíðar. Við vitum að á einhverjum tímapunkti mun flug komast aftur í eðlilegt horf og því viljum við vera vel í stakk búin til að sækja fram og nýta þau tækifæri sem þá verða fyrir hendi. Til að ná þeirri stöðu er nauðsynlegt að gera viðeigandi breytingar á kostnaðaruppbyggingu félagsins, styrkja fjárhagsstöðu þess og leita allra leiða til að styrkja samkeppnishæfi þess til frambúðar," er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, í tilkynningunni.