Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands hafa skrifað undir nýjan kjarasamning sem gildir til 30. september 2025. Samningurinn er í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika fyrir félagið en á sama tíma verja ráðstöfunartekjur flugfreyja og flugþjóna.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:

„Það er virkilega ánægjulegt að hafa gengið frá langtímasamningi við flugfreyjur og flugþjóna en það er mikilvægur þáttur í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og liður í að auka samkeppnishæfni þess til lengri tíma. Töluverðar breytingar til einföldunar voru gerðar frá fyrri samningi sem fela í sér aukið vinnuframlag og aukinn sveigjanleika til þróunar á leiðakerfi Icelandair en samningurinn tryggir jafnframt góð kjör og sveigjanleika fyrir starfsfólk. Með þessum samningi eru flugfreyjur og flugþjónar að leggja sitt af mörkum til að styrkja rekstrargrundvöll Icelandair til framtíðar.“

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands:

„Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) hefur frá upphafi þessarar löngu og flóknu samningalotu fundið til ábyrgðar og sýnt mikinn samningsvilja. Líkt og flugmenn og flugvirkjar hafa flugfreyjur og flugþjónar ætíð verið tilbúin til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og mæta fyrirtækinu á erfiðum tímum. Starfsöryggi félagsmanna FFÍ var eitt af aðaláhersluatriðum samninganefndar í viðræðunum. Með nýjum samningi kom FFÍ til móts við Icelandair í því gjörbreytta landslagi sem blasir við fyrirtækinu og gerir því kleift að auka samkeppnishæfni og sveigjanleika félagsins.“