Icelandair ehf. og FÍA hafa undirritað kjarasamning sem gildir til 31. desember 2019. Samningurinn fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu hjá FÍA.

„Við samningagerðina núna var beitt nýjum vinnubrögðum af hálfu beggja aðila. Markmiðið var að tryggja flugmönnum félagsins samkeppnishæf kjör í alþjóðlegu samhengi og jafnframt styrkja samkeppnishæfni félagsins. Með samningnum eru stigin jákvæð skref sem er mjög ánægjulegt en það sem er ekki síður mikilvægt er að aðilar eru sammála um að halda áfram vinnu á sömu nótum í framhaldi af undirritun samninga,“ segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair í fréttatilkynningu.

„Flugmenn gera sér fulla grein fyri því að samkeppnisumhverfi Icelandair er síbreytilegt.  Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir flugmönnum í heiminum aukist. Það er mjög ánægjulegt að hafa með þessum kjarasamningi unnið að sameiginlegum hagsmunum Icelandair og FÍA. Þannig má segja að kveðið hafi við nýjan tón sem  markar nýtt upphaf að sameiginlegri vegferð FÍA og Icelandair,“ segir Örnólfur Jónsson, formaður FÍA.