Icelandair Group hefur gert bráðabirgðasamkomulag við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrrsetningar Boeing 737 Max vélanna. Í tilkynningu frá Icelandair segir að samkomulagið sé trúnaðarmál og viðræður við Boeing munu halda áfram um að fá heildartjón vegna kyrrsetningarinnar bætt.

Í tilkynningunni er bent á að áður hafi verið greint frá því að áætluð áhrif vegna kyrrsetningar Max vélanna á fyrri helmingi ársins hafi numið um 140 milljónum bandaríkjadala á EBIT afkomu félagsins.

„Hafa þessi áhrif aukist á undanförnum mánuðum þar sem vélarnar eru enn kyrrsettar. Í dag, að teknu tilliti til þess samkomulags sem nú hefur náðst, metur Icelandair Group tjónið eftir sem áður á um 135 milljónir bandaríkjadala,“ segir í tilkynningunni frá Icelandair.

Icelandair mun áfram eiga í viðræðum við Boeing um að fá allt tjónið bætt sem kyrrsetning Max vélanna hefur valdið félaginu. Afkomuspá Icelandair Group fyrir árið 2019 stendur óbreytt og búist er við rekstrartapi (EBIT) upp á 70-90 milljónir dollara.