Mikið fjör var í Kauphöllinni í dag en alls hækkuðu 15 félög í dag þar af 7 yfir 2% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta nam 2,5 milljörðum króna.

Verða á hlutabréfum í VÍS hækkaði mest í Kauphöllinni í dag eða um 3% í 163 milljóna króna viðskiptum. Næstmest hækkaði TM eða um 2,79% í 64 milljóna króna viðskiptum.

Aðeins eitt félag lækkaði í viðskiptum dagsins en það var HB Grandi sem lækkaði um 0,15%.

Íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 1,22% í viðskiptum dagsins.