Formenn 12 meistarafélaga á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar innan Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins gagnrýna eftirlitsleysi með lögvernduðum iðngreinum í ályktun sem félögin hafa sent frá sér. Vilja þau að iðnaðarlög verði endurskoðuð til að tryggja eftirfylgni með lögunum, með þeim rökum að skortur á virku eftirliti stefna öryggi og heilsu landsmanna í hættu.

Kalla þau þá sem ekki hafa tilskilin lögmæt réttindi til iðnaðarstarfa „fúskara“ og vilja að gripið sé til aðgerða til að stöðva starfsemi þeirra, en það segja þau ekki hafa gerst þrátt fyrir kærur til lögreglu og kvartanir til Neytendastofu. Líklegt má telja að tilefnið sé m.a. kaup á ýmis konar þjónustu í gegnum facebook síður og aðrar þar sem boðið er upp á og leitast eftir vinnu með litlum fyrirvara.

Hér má sjá ályktun félaganna:

„Það er með öllu óásættanlegt að ekkert opinbert eftirlit er með þeim fjölmörgu lögvernduðu iðngreinum sem iðnaðarlögin ná til og engin úrræði til að stöðva ófaglærða aðila sem ganga inn á svið lögverndaðra iðngreina þrátt fyrir kærur til lögreglu og kvartanir til Neytendastofu. Á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar er mikilvægt að hægt sé að grípa þegar í stað til úrræða sem stöðva fúskara sem ekki hafa tilskilin lögmæt réttindi. Þar er öryggi og heilsa landsmanna að veði. Meistaradeild Samtaka iðnaðarins hefur barist fyrir þessu um árabil en dæmin sanna að engin úrræði eru til staðar til að stöðva ólögmæta starfsemi í lögvernduðum iðngreinum.

Því er nauðsynlegt að núgildandi iðnaðarlög verði endurskoðuð með það að markmiði að bæta eftirfylgni með lögunum. Störf iðnaðarmanna sem og réttur þeirra til að reka iðnað í atvinnuskyni nýtur lögverndunar og er tilgangur laganna að vernda neytendur, tryggja gæði og fagmennsku enda hafa iðnaðarmenn lokið bóklegu og verklegu námi til að öðlast kunnáttu og færni í faginu.

Þau tólf meistarafélög sem standa að Meistaradeild Samtaka iðnaðarins hvetja stjórnvöld til að koma á virku opinberu eftirliti og tryggja þannig að öryggi og heilsu landsmanna sé ekki stefnt í hættu.“

Meistarafélögin 12 sem senda frá sér ályktunina eru:

  • Félag blikksmiðjueigenda
  • Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
  • Félag skrúðgarðyrkjumeistara
  • Málarameistarafélagið
  • Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi
  • Meistarafélag húsasmiða
  • Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
  • Meistarafélag Suðurlands
  • Múrararmeistarafélag Reykjavíkur
  • Meistarafélag byggingarmanna Vestmannaeyjum
  • Meistarafélag byggingarmanna Suðurnesjum
  • Samtök rafverktaka