InnX skrifstofuhúsgögn hafa sameinast húsgagnahluta A4. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.
„ Starfsemi InnX mun færast í nýjan og glæsilegan sýningarsal A4 í Skeifunni 17 en markmiðið er að styrkja sókn á skrifstofuhúsgagnamarkaðinum með bættri þjónustu og breiðara vöruúrvali. InnX skrifstofuhúsgögn hefur starfað í yfir 20 ár og þjónustað mörg öflugustu fyrirtæki landsins með sölu og ráðgjöf fyrir hágæða skrifstofuhúsgögn," segir í tilkynningunni.
Á meðal vörumerkja InnX sem nú bætast í vöruframboð A4 eru þekkt vörumerki á borð við Steelcase, Orangebox, Bolia, Cube Design og Abstracta.
„ Kröfur íslenskra fyrirtækja til aðbúnaðar starfsfólks eru eðlilega miklar og aukast sífellt. Við teljum að með sameiningu InnX og A4 verði okkur kleift að bjóða framúrskarandi lausnir þar sem áhersla á góða hönnun, mikinn sveigjanleika og samfélagslega ábyrgð verður í áberandi. Við munum höfða sérstaklega til arkitekta og verktaka sem geta leitað til okkar þegar kemur að verkefnum þar sem kröfur eru gerðar um góða hönnun og hagkvæmni í senn. Við ráðum þegar yfir mikilli sérfræðiþekkingu á þessu sviði og teljum að viðskiptavinir InnX muni njóta enn betri þjónustu við þessa sameiningu.” segir Egill Þór Sigurðsson forstjóri A4.