Isavia hefur sagt upp 19 manns og lækkað starfshlutfall 15 til viðbótar vegna brotthvarfs Wow air. Þess fyrir utan hefur verið dregið úr ráðningum og breytingar gerðar á vöktum af sömu ástæðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Starfsmennirnir sem um ræðir starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu, en frestun ráðninga er sögð hafa náð til ýmissa starfsstöðva, þar á meðal skrifstofustarfa.

Aðgerðirnar eru sagðar óhjákvæmilegar vegna minni umsvifa en áætlað hafði verið. Þótt meginorsökin sé brotthvarf Wow er kyrrsetning Boeing MAX flugvéla Icelandair einnig sögð hafa haft áhrif.

Tilkynningin í heild:

Í dag tilkynnti Isavia á fundum með starfsmönnum að félagið hafi gripið til uppsagna á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brotthvarfs Wow air. Um er að ræða starfsmenn sem starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu.

Uppsagnirnar ná til 19 starfsmanna og til viðbótar býðst 15 starfsmönnum lægra starfshlutfall. Áður hafði verið dregið úr sumarráðningum hjá Isavia ásamt því að fjölmörgum fyrirhuguðum ráðningum hafði verið frestað og breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi vaktakerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfsstöðva Isavia, þar á meðal til skrifstofustarfa.

Uppsagnirnar koma aðallega til vegna brotthvarfs Wow air í mars síðastliðnum. Einnig hefur breytt flugáætlun Icelandair í kjölfar kyrrsetninga á MAX vélum Boeing haft áhrif. Umsvif í þjónustu vegna millilandaflugs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, því er óhjákvæmilegt annað en að grípa til þessara aðgerða.