Ísland fer upp um fjögur sæti á listanum milli ára og situr nú í 20. sæti eða sama sæti og árið 2017. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum úttektar IMD viðskiptaháskólans á samkeppnishæfni ríkja.

„Í fyrra var niðurstaðan nokkur vonbrigði þar sem Ísland hafði skriðið upp listann fjögur árin þar á undan. Það má því segja að vonir hafi glæðst á ný," segir í umsögn Viðskiptaráðs Íslands um niðurstöðurnar.

„Ísland hækkar í öllum meginþáttum úttektarinnar en er þó enn alls staðar undir meðaltali hinna Norðurlandanna. Í efnahagslegri frammistöðu fer Ísland upp um þrjú sæti í það 54. að þessu sinni. Meiri hagvöxtur en í öðrum ríkjum skýrir þá þróun að miklu leyti. Skilvirkni hins opinbera eykst einnig milli ára og fer Ísland þar upp um eitt sæti og ræður þar miklu betra mat stjórnenda á stofnanaumgjörð. Skilvirkni atvinnulífsins batnar milli ára og situr Ísland nú í 19. sæti, þökk sé m.a. aukinni framleiðni og bættum stjórnarháttum. Loks hækkar Ísland um fjögur sæti og upp í það 13. í samfélagslegum innviðum þar sem margir ólíkir þættir spila saman."

Útkoma annarra ríkja

Breytingar og órói í alþjóðastjórnmálum og -viðskiptum lita niðurstöðurnar í ár. Bandaríkin, sem tróndu á toppi listans í fyrra falla um tvö sæti og víkja fyrir Singapúr sem kemst aftur á toppinn. Hong Kong stendur í stað í öðru sæti en Sviss fer upp um eitt sæti og endar í 4. Holland lækkar um tvö sæti úr fjórða í það sjötta.

Ísland stendur Norðurlöndunum enn nokkuð að baki og má þar meðal annars telja smæð hagkerfisins, stofnanir og tækniinnviða meðal áhrifaþátta. Danmörk er enn efst af Norðurlöndunum og lækkar um tvö sæti (8. sæti), Svíþjóð er næst og stendur í stað (9. sæti). Noregur fellur um þrjú sæti (11. sæti). Finnland fer upp um eitt sæti, úr 16. í 15. og sem fyrr segir er Ísland neðst af Norðurlöndunum í 20. sæti.