Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að Ísland muni taka þátt í ferðabanni Evrópusambandsins sem gilda mun um ríki innan Schengen svæðisins.

Segir hún þetta einungis þó eiga við um ferðamenn sem komi utan Schengen svæðisins, og segir komu þeirra að mestu sjálfhætt hvort eð er vegna útbreiðslu Covid 19 veirusýkingarinnar.

„Þrátt fyrir að ferðabann hafi ekki verið ofarlega hjá okkar sérfræðingum sem árangursrík aðferð gegn útbreiðslu kórónuveirufaraldursins þá hefur verið biðlað til okkar að taka þátt í lokun landamæra ESB- og Schengen-ríkjanna og við eigum óhægt um vik að skorast undan því,“ segir Áslaug Arna á facebook síðu sinni .

„Alþjóðlegt og svæðisbundið samstarf ríkja er mikilvægt í baráttunni við veiruna og við þurfum á samstarfi ESB- og EES-ríkjanna að halda. Á grundvelli þess og mati á okkar hagsmunum þá munum við taka þátt í aðgerðum Schengen-ríkjanna og loka hér ytri landamærum.“

Áslaug klikkir þó út með því að stjórnvöld væntanlega hafi ítrekað bent á sérstöðu Íslands innan svæðisins síðustu daga.

„Við erum eyja langt frá öðrum löndum og við eigum meira undir flugsamgöngum og við höfum því beðið um að sérstakt tillit verði tekið til okkar þegar við sjáum fyrir að við viljum fara aflétta þessari lokun.“