Íslandsbanki og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) hafa undirritað nýjan samstarfssamning en bankinn hefur verið aðalstyrktaraðili félagsins frá árinu 2010. Samningurinn er til þriggja ára.

Markmið samningsins er að stuðla að því að efla félagið og leggja áherslu á að miðla fjármálatengdri þekkingu og reynslu til félagskvenna í formi samvinnuverkefna, viðburða og fræðslu að því er segir í fréttatilkynningu.

FKA er félag fyrir konur sem eru stjórnendur og leiðtogar í íslensku atvinnulífi og eru um 1100 konur í félaginu í dag um land allt.

„Stuðningur Íslandsbanka hefur verið félaginu afar mikilvægur síðustu árin, enda hefur félagið eflst mjög hin síðustu ár og stendur nú sem eitt mikilvægasta hreyfiafl kvenna í atvinnulífinu á Íslandi. Meginmarkmið félagsins er að auka á hlutdeild kvenna í stjórnunarstöðum og þétta raðirnar okkar sem öflugt tengslanet. Þar hefur Íslandsbanki verið til fyrirmyndar í samstarfi, enda bankinn leiðandi í jafnréttismálum og þá ekki síst í því markmiði að réttur kynja í ráðningum og til starfsþróunar sé jafn. Áframhaldandi samstarf FKA við Íslandsbanka er því mikið fagnaðarefni og felur í sér stuðning við okkar starf í víðtækri merkingu,“ er haft eftir Rakel Sveinsdóttur, formanni FKA í tilkynningunni.

Þá er einnig haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka: „Við höfum unnið markvisst að því að jafna hlut kynjanna hjá okkur í Íslandsbanka og uppskerum við í dag eftir því. Það er okkur mikilvægt að sýna gott fordæmi þegar kemur að jafnréttismálum enda skiptir það öll fyrirtæki máli að fleiri konur stýri peningum og sitji í stjórnunarstöðum á Íslandi. Farsælt og gott samstarf við FKA hefur verið okkur mikilvægt í þeirri vegferð.“