Í nýlegri könnun MMR á ferðahögum Íslendinga kemur fram að 91% Íslendinga, 18 ára og eldri, ætla að ferðast í sumarfríi sínu. Er þetta aukning um 6 prósentustig frá árinu á undan. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu MMR .

Hlutfall þeirra sem ætla eingöngu að ferðast innanlands í sumarfríinu mældist 37% meðan hlutfall þeirra sem ætluðu einungis að ferðast utanlands voru 15%. Þá ætluðu 39% Íslendinga að ferðast bæði innan- og utanlands í sumar.  Þeir sem eru búsettir á landsbyggðinni voru mun líklegri til að ferðast innanlands í sumar, eða um 44% samanborið við 33% á höfuðborgarsvæðinu.

Því hærri sem heimilistekjur svarenda voru því líklegri voru þeir til að segjast ætla að ferðast, hvort sem það var innanlands eða utanlands eða bæði. Þannig sögðust 85% þeirra sem höfðu heimilistekjur undir 400 þúsund ætla að ferðast í sumarfríinu á meðan 95% þeirra með sem höfðu milljón eða meira í heimilistekjur sögðust ætla að ferðast í sumarfríinu.

Þá reyndist einnig munur á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum. Voru kjósendur Vinstri grænna líklegastir til að ferðast einungis innanlands eða 47%. Þeir hópar sem reyndust ólíklegastir til að ferðast í sumarfríi sínu voru  Vinstri græn, Píratar og Viðreisn, allir jafnir með 10%. Það var hins vegar stuðningsfólk Samfylkingarinnar sem voru líklegust til að fara í sumarfrí erlendis.