Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, var kosinn formaður Landssambands bakarameistara, LABAK, á aðalfundi sambandsins sem fór fram á laugardaginn síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samtaka iðnaðarins.

Jón Albert Kristinsson, sem gegnt hefur formannsembætti síðastliðin þrjú ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en Jóhannes hefur setið í stjórn LABAK samfellt í 15 ár og þar af 7 ár sem formaður. Auk þessa koma Róbert Óttarsson og Sigurbjörg Sigþórsdóttir ný inn í stjórnina í stað þeirra Jóns Þórs Lúðvíkssonar og Reynis Carls Þorleifssonar. Sigurbjörg er fysta konan sem tekur sæti í stjórn LABAK.