Sjö bjóða sig fram til fimm manna stjórnar Haga á hluthafafundi sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, föstudaginn 18. janúar næstkomandi kl. 09:00.

Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður, og Sigurður Arnar Sigurðsson, varaformaður stjórnar, gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hins vegar býður Jón Ásgeir Jóhannesson, sem stofnaði Bónus, sem nú er hluti af Högum með föður sínum, sig fram í stjórnina. Hann er þó ekki meðal þeirra fimm sem hlotið hafa náð tilnefninganefndar félagsins.

Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  • Davíð Harðarson, fjármálastjóri Nordic Visitor
  • Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Slippsins Akureyri
  • Erna Gísladóttir, forstjóri og eigandi BL ehf.
  • Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir
  • Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands
  • Kristján Óli Níels Sigmundsson, bifreiðastjóri og fjárfestir
  • Stefán Árni Auðólfsson, lögmaður hjá LMB lögmönnum slf.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Tilnefningarnefnd hefur farið yfir þau framboð sem bárust innan tiltekins frests og leggur hún til að Davíð Harðarson, Eiríkur S. Jóhannsson, Erna Gísladóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Stefán Árni Auðólfsson verði kosin í stjórn félagsins. Skýrsla nefndarinnar er hér meðfylgjandi.

Þegar lögboðinn framboðsfrestur er runninn út, eða minnst tveimur dögum fyrir hluthafafund, verður tilkynnt um endanlegan lista frambjóðenda.