Horn III slhf., framtakssjóður í rekstri Landsbréfa hf., hefur keypt 40% hlut í Bílaleigu Flugleiða ehf. af stjórnendum félagsins sem eiga eftir viðskiptin 60% hlut. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá 9. apríl síðastliðinn heimilaði Samkeppniseftirlitið kaupin, með skilyrðum þó.

Bílaleiga Flugleiða ehf. var stofnuð árið 1971 og hefur verið sérleyfishafi bílaleigunnar Hertz á Íslandi frá árinu 1973. Hertz er leiðandi alþjóðleg bílaleiga sem á eitt þekktasta vörumerki heims og er með um 8.500 leigustöðvar í 150 löndum.

Horn III er 12 milljarða króna framtakssjóður stofnaður af Landsbréfum en hluthafar eru rúmlega 30 talsins og samanstanda af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum.

Horn III fjárfestir í óskráðum íslenskum fyrirtækjum með trausta og góða rekstrarsögu. Stjórnendur Bílaleigu Flugleiða og stjórnarmenn eru Hendrik Berndsen, Sigfús B. Sigfússon, Sigurður Berndsen og Sigfús R. Sigfússon.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Brandsvik Corporate Finance voru ráðgjafar seljenda og  stjórnenda. Akrar Consult og Pacta lögmenn voru ráðgjafar Horns III.