Ríkissáttasemjari hefur ákveðiði að efna til þriggja daga námsstefnu um samningagerð fyrir íslenskt samninganefndafólk að því er kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Þetta er í fyrsta skipti sem embættið gengst fyrir slíkri námstefnu í þessari mynd en hún verður endurtekin í byrjun október.

Alls eru um 300 manns frá stéttarfélögum og launagreiðendum sem koma að hverri kjarasamningalotu hér á landi.

Námsstefnan er hluti af umbótaverkefni á vegum embættisins og miðar að því bæta verklag við kjarasamningagerðina með því að efla færni samninganefndafólks, auka fagmennsku við samningaborðið og stuðla að órofa samningaferli.

Í tilkynningunni segir að á námstefnunni muni gefast einstakt tækifæri til að læra nýjustu aðferðir, deila reynslu og efla marksækni og fagmennsku við samningaborðið með það að markmiði að bæta vinnubrögðin við kjarasamningagerðina. Meðal annars verður fjallað um leikreglur á vinnumarkaði, kröfugerð, góða samningahætti og teymisvinnu auk þess sem farið verður yfir ábyrgð samningarmanna og mikilvægi góðra og yfirvegaðra samskipta í samningaferlinu.

Tímasetning námstefnunnar er meðal annars valin með hliðsjón af því að 80 kjarasamningar renna út í desember n.k. og 149 til viðbótar í mars 2019. Stefnt er að því að námsstefna í samningagerð verði reglulega í boði á vegum embættis ríkissáttasemjara enda er yfirleitt mikil endurnýjun í samninganefndum samningsaðila.