Netkosningu Pírata um framboðslista flokksins fyrir Norðausturkjördæmi er nú lokið og niðurstöður liggja fyrir. Það er Einar Aðalsteinn Brynjólfsson, framhaldsskólakennari við Menntaskólann á Akureyri, sem leiðir lista Pírata.

Alls voru 14 manns í framboði og það voru 78 flokksmenn sem greiddu atkvæði í netkosningunni. Í öðru og þriðja sæti listans eru þau Guðrún Ágústa Þórdísardóttir, rekstrarfræðingur, og Hans Jónsson, öryrki.

Listinn lítur allt í allt svona út:

  1. Einar Brynjólfsson
  2. Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
  3. Hans Jónsson
  4. Kristín Amalía Atladóttir
  5. Gunnar Ómarsson
  6. Stefán Víðisson
  7. Björn Þorláksson
  8. Sævar Þór Halldórsson
  9. Helgi Laxdal
  10. Gunnar Rafn Jónsson
  11. Arndís Bergsdóttir
  12. Albert Gunnlaugsson
  13. Íris Garðars
  14. Jóhannes Guðni Halldórsson