Fyrirtækið Einn, tveir & elda sem hóf starfsemi sína í dag leggur til uppskriftir að fjölbreyttum máltíðum auk alls hráefnis sem þarf til eldamennskunnar fyrir viðskipta vini sína. Fyrirtækið hefur samið við íþróttafélögin um að sjá um afhendingu réttanna í sínum hverfum, sem fá á móti hlutdeild í afrakstrinum.

Fyrirtækið býður upp á hagkvæma lausn í matarinnkaupum sem dregur úr matarsóun og eykur sparnað heimilanna segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Losnaðu við hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn og upplifðu nýjar og spennandi uppskriftir segir þar jafnframt. Fréttatilkynningin fer hér á eftir:

Meiri fjölbreytni

Auk girnilegra uppskrifta frá kokkum Einn tveir & elda mun hópur þekktra aðila útbúa sérstaka gestapakka í hverri viku en þar má meðal annars nefna Ragnar Frey (læknirinn í eldhúsinu), Jóa Fel.

Einn, tveir & elda býður einnig upp á sérstakan heilsupakka sem Gunnar Már, sem kenndur er við lágkolvetna lífsstílinn, mun sjá um.  Á einntveir.is er hægt að skoða réttina og uppskriftir hverrar viku, og setja saman sinn eigin matarpakka eftir sínum smekk.

Nýjar aðferðir við dreifingu í samstarfi við íþróttafélögin

Einn tveir & elda fer nýjar leiðir í vörudreifingu, en þannig er komið til móts við óskir þeirra fjölmörgu sem vilja sækja vörurnar á afhendingarstað í sínu eigin hverfi.

Í þeim tilgangi hefur fyrirtækið samið við íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu, en þar munu viðskiptavinir geta sótt sínar pantanir. Félögin fá hlutdeild í sölunni og því geta viðskiptavinir stutt sitt félag og sparað sér sendingarkostnað með því að velja að sækja vörurnar þangað.

Eftirspurnin á Íslandi fjórfaldast

„Máltíðamarkaðurinn er í hröðum vexti um allan heim og ef þú horfir til þróunar í nágrannalöndunum má gera ráð fyrir því, að hér á landi muni markaðurinn fjórfaldast að umfangi á næstu tveimur árum.“ segir Jón Arnar Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Einn, tveir og elda.

„Við leggjum áherslu á að þjónustan sé einföld og þægileg í notkun, hún spari neytendum tíma og fyrirhöfn og dragi úr matarsóun. Það þarf ekki lengur að kenna íslendingum að panta netinu, það eru nánast allir farnir að gera það reglulega.

Við Íslendingar vinnum auðvitað einna mest allra í Evrópu og hraðinn er orðinn svo mikill í samfélaginu okkar að sífellt fleiri leita leiða til þess að spara sér tíma einmitt eftir vinnu og skóla þegar þú vilt frekar eyða tíma með fjölskyldunni heima en úti í búð. Svo er það auðvitað svo að þegar innkaupin eru í fullkomlega réttum skömmtum þá spornum við gegn matarsóun sem ekki er vanþörf á.“

Tækifæri til að styðja sitt félag

Jón Arnar bætir við að það sé mikið ánægjuefni að geta gert þetta í samvinnu við íþróttafélögin.

„Það styrkir auðvitað dreifinguna og gefur fólki tækifæri á að styðja við sitt félag. Svo eru nýjungar eins og það að geta valið úr mörgum réttum í sinn Klassíska pakka og Gestakokkarnir sem við vitum að fólk bíður spennt eftir að prófa. Við alla vega hlökkum mikið til að hjálpa fólki að njóta dagsins, því við ætlum að sjá um kvöldið!“.

Hjá Einn, tveir & elda starfar öflugur hópur sælkera sem töfrar fram frábæra rétti í hverri viku sem einfalt og skemmtilegt er að elda. Einn, tveir & elda leggur áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini, mikið úrval uppskrifta, ferskt hráefni og gott bragð.

Máltíðarfyrirtækið Einn, tveir & elda er í nánu samstarfi með íslenskum matvælaframleiðendum eins og garðyrkjubændum og birgjum til að tryggja ferskleika og gæði.