Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Fiskistofu að svipta skipið Kleifaberg RE-70 leyfi til veiða í atvinnuskyni í 12 vikur vegna meints brottkasts afla.

Fiskistofa byggði ákvörðun sína á grundvelli þess sem sást á fimm innsendum myndskeiðum. Fjögur myndskeiðanna voru frá árinu 2008 og 2010 og eitt frá árinu 2016. Í ljósi þess hve langur tími leið frá meintum brotum, 8 – 10 ár, þar til kæranda var tilkynnt um að málið væri til meðferðar hjá Fiskistofu taldi ráðuneytið að það væri í andstöðu við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga að beita viðurlögum vegna meintra brota. Ráðuneytið felldi því ákvörðun Fiskistofu úr gildi að því leyti sem hún laut að meintum brotum frá árinu 2008 og 2010.

Varðandi myndskeið frá árinu 2016, hafnar ráðuneytið túlkun Fiskistofu á 2. mgr. 2. gr. laga nr. 57/1996, um að það teljist vera brottkast þrátt fyrir að um sé að ræða eignarspjöll af hálfu áhafnarmeðlims. Ráðuneytið úrskurðar að Fiskistofu hafi borið að rannsaka betur hvort um eignarspjöll hafi verið að ræða fremur en brottkast. Ráðuneytið taldi því að rannsóknaregla 10. gr. stjórnsýslulaga hefði verið brotin og vísaði þessum hluta málsins aftur til meðferðar hjá Fiskistofu.