Fulltrúar 34 samtaka kvenna og fimm heildarsamtaka launafólks munu sameiginlega efna til viðburðarins Kvennafrí 2018 þann 24. október næstkomandi., undir formerkjum #metoo / #églíka. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðuneytisins . Með því vilja konur láta heyra í sér á nýjan leik og kalla eftir aðgerðum stjórnvalda, atvinnurekenda, stéttarfélaga, félagasamtaka og stofnana og breytingum innan samfélagsins í heild.

Undirbúningsnefnd sem skipuð hefur verið um viðburðinn leitaði til ríkisstjórnarinnar með beiðni um styrk vegna undirbúnings og framkvæmd samstöðufunda og samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum í morgun að veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins.