Í kjölfar mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna á Íslandi hefur þörfin fyrir aðgengilegri framsetningu á íslensku lambakjöti í verslunum verið aðkallandi segir í fréttatilkynningu frá Markaðsráði kindakjöts. Í samvinnu við Krónuna, Kjarval og Norðlenska hefur Icelandic lamb nú brugðist við og kynnir nýja vörulínu. Ætlunin er að ná til þeirra ferðamanna sem kjósa að elda sjálfir í stað þess að borða á veitingastöðum.

  • Allar pakkningar eru með enskum texta.
  • Upplýsingar um eldunartíma eru áberandi á hverjum pakka.
  • Á hverjum pakka er að finna einfalda og fljótlega uppskrift.
  • Flestar pakkningarnar eru ætlaðar fyrir einn. (um 200 gr)
  • Nýja vörulínan verður á boðstólum í öllum verslunum Krónunnar og Kjarvals.
  • Til að byrja með fara fimm nýjar afurðir í verslanir. Allar eru unnar úr lærum.
  • Vöruhönnunin er afrakstur samstarfs Icelandic Lamb, kokka og kjötiðnaðarmanna.

Þetta er í fyrsta sinn sem lambakjöt er markaðssett sérstaklega til erlendra ferðamenna með heilstæðum hætti. Kynning á samfélagsmiðlum er þegar farin af stað og litlum uppskriftabæklingum á ensku og íslensku verður dreift á útsölustöðum. Um er að ræða tilraunaverkefni en erlendir kaupendur hafa sýnt því áhuga að dreifa vörulínunni til sælkeraverslana í Bandaríkjunum, Japan og Evrópu allt árið um kring.

Nýja vörulínan er hluti af verkefni Icelandic lamb sem miðar að því að kynna íslenskt lambakjöt fyrir erlendum ferðamönnum og auka vöruval og verðmæti lambakjöts. Icelandic lamb er nú þegar í samstarfi við um 100 veitingastaði sem setja íslensk lambakjöt í öndvegi. Árangurinn hefur verið vonum framar segir í tilkynningunni og má m.a. rekja aukna sölu innanlands til aukinnar sölu á lambakjöti til erlendra ferðamanna.