Landsbankinn hefur hækkað breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig. Þá hækka fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum til 36 mánaða um 0,30 prósentustig og um 0,25 prósentustig á óverðtryggðum íbúðalánum til 60 mánaða. Vextir á verðtryggðum íbúðalánum, bæði breytilegir og fastir, verða óbreyttir. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu á vef Landsbankans .

Í kjölfarið ofangreindra hækkana verða breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum 4,20% og lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,65%.

„Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,35 prósentustig en kjörvextir á verðtryggðum útlánum verða óbreyttir. Breytilegir vextir óverðtryggðra lána vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,35 prósentustig. Yfirdráttarvextir hækka um 0,50 prósentustig,“ segir í tilkynningu bankans.

Þá hækka vextir á óverðtryggðum sparireikningum um allt að 0,50 prósentustig, vextir á reikningum með föstum vöxtum um 0,50 prósentustig og vextir almennra veltureikninga um 0,05 prósentustig.

Segir bankinn að ofangreind vaxtaákvörðun sé tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá því fyrir viku síðan er peningastefnunefnd ákvað að hækka vexti um 0,50 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taki einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans.

„Ný vaxtatafla bankans tekur gildi fimmtudaginn 25. nóvember 2021. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka,“ segir að lokum í tilkynningu Landsbankans.