Landsnet hagnaðist um 19,7 milljónir dollara á fyrri helmingi þessa árs sem samsvarar rétt rúmum 2,4 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar hagnaðist fyrirtækið um 16 milljónir dollara á fyrri helmingi árs á síðasta ári.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 29,9 milljónum dollara samanborið við 29,2 milljónir dollara árið áður og er daglegur rekstur félagsins stöðugur.

Heildareignir félagsins í lok tímabilsins námu 850,5 milljónum dollar samanborið við 846,3 milljónir dollara í lok árs 2018. Heildarskuldir námu í lok tímabilsins 467,8 milljónum dollara samanborið við 476,0 milljónum dollara í lok árs 2018. Síðasti gjalddagi af stofnláni frá móðurfélagi er 21. mars 2020. Lánið var með einum gjalddaga en hefur að stórum hluta verið greitt niður á síðustu árum.

Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 45,0% samanborið við 43,8% í lok ársins 2018. Eigið fé í lok tímabilsins nam 382,8 milljónum dollara.

Staða fyrirtækisins er sterk, eiginfjárstaða góð og við erum að fylgja eftir góðum árangri undanfarinna ára. Á fyrri hluta ársins eru fjárfestingar lægri en áætlað var, helsta ástæða þess er að stór verkefni fóru seinna af stað en við reiknuðum með vegna tafa á leyfisveitingum. Það er mjög mikilvægt að hraða málsmeðferðinni og gera leyfisveitingaferlið skilvirkara. Tafir eins og við höfum staðið frammi fyrir eru kostnaðarsamar ekki bara fyrir Landsnet heldur líka þá sem eru að nota orkuna. Eins og staðan er í dag tapast mikil orka í kerfinu, virkjanir nýtast ekki sem skyldi og neytendur hafa ekki tryggan aðgang að orku alls staðar á landinu. Þetta er ekki góð staða þegar við horfum til umhverfis- og samfélagslegra þarfa. Sem fyrirtæki er Landsnet vel í stakk búið til að takast á við þessar áskoranir," segir Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets.