Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Íslandsbanka í BBB/F3 með stöðugum horfum. Þetta kemur fram í frétt á vef Íslandsbanka .

Í mati sínu vísar Fitch til sterkrar stöðu Íslandsbanka á innlendum markaði þar sem bankinn hefur um 30% hlutdeild í útlánum og innlánum, auk þess sem eignasafn bankans er sagt traust, fjármögnun hans stöðug og lausa- og eiginfjárhlutföll há. Áframhaldandi áhersla Íslandsbanka á innlendan markað ásamt traustum ramma um áhættustýringu mun að mati Fitch halda áfram að styrkja eignahlið efnahagsreiknings bankans en vanskilahlutfall lána hjá bankanum hefur lækkað stöðugt frá árinu 2010.

Fitch hækkaði á dögunum lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í A úr A- í fjórða skipti á árinu. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs setur nokkurs konar þak á lánshæfi annarra íslenskra lántakenda á alþjóðlegum mörkuðum. Jákvæð þróun á lánshæfi ríkissjóðs og bankans ætti að bæta lánakjör íslensku bankanna og aðgang þeirra að fjármagni á erlendum mörkuðum.