Matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði hækkað lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins á langtímaskuldbindingum í innlendri og erlendri mynd í „A-“ úr „BBB+“. Þá eru horfur fyrir einkunnina sagðar jákvæðar (e. outlook positive). Um þetta er hægt að lesa á vef Seðlabanka Íslands.

Drifkraftar hækkunarinnar eru einkum batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt sterkum hagvexti. Þættr sem gætu leitt til hækkunar á lánshæfiseinkunn eru meðal annars; Geta þjóðarbúsins til að mæta ytri áföllum eftir afnám fjármagnshafta; Áframhaldandi hagvöxtur án of mikils þjóðhagslegs ójafnvægis og áframhaldandi lækkun skuldahlutfalla hins opinbera, studd af ábyrgri ríkisfjármálastefnu.

Framvinda sem væri líkleg til að leiða til lækkunar á lánshæfiseinkunn væru til að mynda: Vísbendingar um ofhitnun hagkerfisins, til dæmis með víxlhækkun launa og verðlags og verðbólgu umfram markmið, með neikvæðum áhrifum á efnahagsreikninga heimila og fyrirtækja. Einnig gæti þar spilar inn í veikari ásetningur um að efla stöðu ríkisfjármála til meðallangs tíma eða mikil útflði fjármagns sem myndi leiða til ytra ójafnvægis og þrýstings á gengi krónunnar.