HB Grandi áformar að láta af botnfiskvinnslu á Akranesi og hefur hafið samráð við trúnaðarmenn stéttarfélaga starfsmanna vegna þessa og því sem það kann að þýða fyrir starfsfólk, að því er kemur fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar.

Félagið stefnir að því að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við vinnsluna í Reykjavík. Eins og sakir standa starfa nú um 270 starfsmenn innan samstæðu HB Granda, þar af 93 við botnfiskvinnsluna.

„HB Grandi rekur, auk botnfiskvinnslunnar, skipaverkstæði, fiskimjölsverksmiðju, loðnuvinnslu og tvö dótturfyrirtæki,  Norðanfisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Stefnt er að frekari uppbyggingu og eflingu þess rekstrar á Akranesi.

Í dag er hvorki hafnaraðstaða né aðstaða til vinnslu alls botnfiskafla ísfisktogara HB Granda á Akranesi en forsvarsmenn félagsins og Akranesbæjar eiga í viðræðum um mögulegar breytingar á því,“ segir einnig í tilkynningunni.

Lakar rekstrarhorfur

Fyrr í dag sendi HB Grandi frá sér aðra tilkynningu þar sem kom fram að rekstrarhorfur fyrir botnfiskvinnslu hafa ekki verið lakari í áratug og að HB Grandi þyrfti því að draga verulega úr eða hætta kaupum botnfisks á fiskimarkaði.

Einnig segir að útlit sé fyrir tap af landvinnslu botnfisks og því sé félagið að bregðast við þeirri þróun. Að sögn HB Granda voru unnin 28 þúsund tonn af þorski, ufsa og karafa í fiskvinnslum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi, árið 2016. Þar af voru keypt 4 þúsund tonn af ufsa og þorski af öðrum útgerðum og á fiskimarkaði.