Launavísitala í september 2018 er 667 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,9%. Lítillega hefur því hægt á hækkun launa en til samanburðar hækkaði launavísitalan um 7,4% frá september 2016 til september 2017. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Kaupmáttur launa í september 2018 er 149,8 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3%.