Laundromat Cafe í Austurstræti 9 mun loka á sunnudaginn næskomandi kl. 23:00 í síðasta skipti, allavega á þeirri staðsetningu. Ekki náðist saman við leyfishafann um áframhaldandi samstarf en forsvarsmenn Laundromat vinna nú að því að fá til liðs við sig nýja samstarfsaðila til að opna að nýju að því er kemur fram í tilkynningu frá Friðriki Weisshappel Jónssyni, eiganda Laundromat Cafe.

Tilkynninguna má lesa hér að neðan:

„Kæru Íslendingar til sjávar og sveita

Eftir 7 frábær ár í Austurstræti 9 hryggir það mig að tilkynna um lokun The Laundromat Cafe næstkomandi sunnudag þann 11. febrúar kl. 23:00.

Ekki náðist saman um áframhaldandi samstarf við leyfishafann Þvottakaffi ehf og eiganda þess.

Ég vil þakka öllum sem hafa heimsótt okkur í gegnum árin í eitt fallegasta hús Reykjavíkur fyrir stórkostlegar viðtökur frá fyrsta degi og einnig öllum sem ég hef kynnt og unnið með á þessu tímabili, mikið asskoti var þetta gaman! Takk.

Við erum í viðræðum við nýja samstarfsaðila og líkur á að Laundromat Cafe opni fljótlega á öðrum stað... en núy er ekki meira um þetta að segja en...

Köttur út í mýri, úti er ævintýri! Í bili.“