Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 177,7 stig í janúar og lækkar um 1,1% frá fyrri mánuði að því er kemur fram á vef Þjóðskrár . Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu er ætlað að sýna breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Viðskiptablaðið fjallaði um það fyrr í dag að húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,0% í janúar en þar af hækkaði verð á fjölbýli um 1,1% og verð á sérbýli um 0,7%. Síðustu tólf mánuði hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 13%.