Landsamtök lífeyrissjóða áætla að raunávöxtun lífeyrissparnaðar landsmanna hafi verið að meðaltali vel yfir 11% á síðasta ári, en þar er miðað við vegið meðaltal ávöxtunar alls eignasafn sjóðanna á árinu.

Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu 2018 þegar hrein raunávöxtun var 1,95% að jafnaði, sem jafnframt var mun lakari en 2017 þegar sambærileg tala var 5,38%.

Ávöxtunartölur 2018 og 2017 komu fram í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu 20. júní 2019 og jafnframt var þar tekið fram:

„Alþjóðlega hefur hrein ávöxtun lífeyrissjóða 2018 verið undir langtímamarkmiðum þeirra og í flestum löndum var ávöxtun neikvæð. Aðeins fimm lönd sýna jákvæða ávöxtun og þar á meðal Ísland.“

Þar sem nokkrir lífeyrissjóðir vinna enn að ársuppgjörum sínum liggja ekki fyrir endanlegar tölur um ávöxtun 2019. Landsamtökin segja samt að afkoman í heild hafi verið mjög góð sem skýrist bæði á mörkuðum heima og heiman.

Erlend hlutabréf hækkuðu mest en innlend skuldabréf skiluðu líka mjög góðri ávöxtun. Helstu drifkraftar þar voru lækkandi raunvextir og lækkandi verðbólguálag sem stuðlaði að hækkandi virðis skuldabréfa. Heildareignir landsmanna í lífeyrissjóðum eru nú yfir 4.900 milljarðar króna eða sem nemur rúmlega 160% af landsframleiðsl