Eftir frekar rólegan viðskiptadag í Kauphöllinni í gær hefur heldur betur lifnað yfir markaðnum.

Þegar þessi frétt er skrifuð hefur OMXI8 úrvalsvísitalan hækkað um 1,23% í viðskiptum dagsins og nemur heildarveltan 1,6 milljarði króna.

Gengi flestra félaga í Kauphöllinni hefur hækkað í viðskiptum dagsins. Bréf TM hafa hækkað mest eða um 2,79% í 64 milljóna króna viðskiptum.

Gengi tveggja félaga hefur lækkað, HB Granda (um 0,15%) og Sýnar (um 0,69%).