Lífeyrissjóðurinn Lífsverk og Íbúðir eldri borgara í Mörk ehf., hafa undirritað samkomulag um langtíma fjármögnun á íbúðum eldri borgara við Suðurlandsbraut 68 – 70. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Í samkomulaginu felst að sjóðfélagar Lífsverks njóta ákveðins forgangs við úthlutun á íbúðunum. Lífsverk er þannig fyrsti lífeyrissjóðurinn sem tryggir sjóðsfélögum sínum forgang að íbúðum fyrir eldri borgara. Íbúðirnar við Suðurlandsbraut eru 74 talsins og samkvæmt samkomulaginu munu sjóðsfélagar Lífsverks fá forgang að 20 íbúðum.

„Við höfum leitað leiða til að koma til móts við sjóðsfélaga okkar sem vilja öryggi á efri árum og þegar leitað var til okkar eftir fjármögnun að verkefninu, sáum við strax tækifæri í þessu og gengum til samninga á þessum forsendum og brjótum þannig blað í sögu lífeyrissjóða,“ segir Jón L. Árnason, framkvæmdastjóri Lífsverks.

„Lífsverk hefur lagt aukna áherslu á samfélagslega ábyrgð og leiðir til að bæta stöðu sjóðfélaga til framtíðar. Þarna er tækifæri til að koma til móts við eldri kynslóðina en fyrr á árinu réttum við þeim yngri hjálparhönd með því að bjóða 85% fjármögnun vegna fyrstu íbúðakaupa,“ segir Jón.

„Mikil ásókn er í íbúðir sem þessar og þegar er kominn langur biðlisti að þeim 74 íbúðum sem eru í Mörkinni. Lífsverk fær með þessum samningi forgang að 10 íbúðum sem losna, því næst koma þeir sem eru á almennum biðlistum og þá fær Lífsverk aftur forgang að næstu 10 íbúðum. Að fá Lífsverk að borðinu sem fjármögnunaraðila er góður kostur og ég tel að lífeyrissjóðir muni í æ ríkari mæli snúa sér að slíkum verkefnum,“ segir Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri Íbúða eldri borgara í Mörk ehf.

„Úr íbúðunum er innangengt í hjúkrunarheimilið Mörk þar sem hægt er kaupa heitan mat í hádeginu, fara til sjúkraþjálfara, öldrunarlæknis, í hárgreiðslu og fótsnyrtingu. Þá verður opnuð sundlaug og líkamsrækt í vetrarbyrjun í tengslum við íbúðirnar,“ segir Gísli Páll.

Lífsverk var stofnaður árið 1954 og er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða. Hann var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem byggði á aldurstengdum réttindum, tók upp sjóðsfélagalýðræði og rafrænt stjórnarkjör.